Lífið í Odense

05.06.2009 09:18:54 / annahuld

Og tíminn flýgur :-)

Já margt hefur drifið á daga okkar Ernis síðan í síðasta bloggi. Flestar helgar fara í að gera eitthvað skemmtilegt.

Ernir er orðin alvöru golfari. Komin með golfsettið út og búin að fara á 2 Íslendingamót, bara gaman af því :d
 
Við erum búin að fá 2 heimsóknir. Fyrst kom Eva mín og það var alveg frábært að fá hana að vanda :). Við gátum farið í nokkrar búðir og þá aðalega skoðað eitthvað að litlu væntanlegu krílin okkar :p. Gengið er náttúrulega eins og það er þannig ég hef aldrei séð Evu versla svona lítið og næstum ekkert á sjálfan sig! Já hún Eva mín versaði helling á sinn heitt elskaða og litla erfingjan, svona er maður orðin fullorðin hehe :d. En svona fyrir utan búðirnar þá var farið í góðan göngutúr að ná í nýja fína vagninn minn ooog fengum við nokkur skrítin augu, tvær óléttar út að labba með barnavagn hehe, ég er alveg viss um að fólk hefur hugsað... þessar trúa ekki á getnaðarvarnir hehe. Við skelltum okkur líka í picknik í HC Andersen garðinn og svo var kíkt kaffihús á kvöldin í gott spjall yfir heitu súkkulaði :). Ferðin endaði svo á því að ég skellti mér með Evu til Arhus að heimsækja vinkonu hennar þar. Við gistum hjá Guðrúnu Dúfu í góðu yfirlæti. Grillað var um kvöldið og haft það gott. Daginn eftir var kíkt niðrí bæ í hádegismat og svo fóru stelpurnar á búðaráp og ég hélt tilbaka til Odense 8). Eva hélt svo til Íslands á sunnudeginum. Takk Eva mín fyrir góða heimsókn.

Ásdís kom svo í vikunni eftir það. Það var minna skoðað í búðir þá vikuna, enda toppar engin Evu :) En við fórum í marga góða göngutúra, skoðuðum HC Andersen safnið, sýndum henni grænmetismarkaðinn og höfðum það rosa gott hér á kvöldin, ýmist í að spjalla eða horfa á TV. Ég nýtti mér tækifærið og spurði Ásdísi endalaust út í fæðingarnar og meðgöngu, rosa gott að spjalla við hana, takk fyrir komuna skvís :p

Hér er búið að vera snilldar veður svona á milli þess sem við erum með gesti. Ásdís fékk til dæmis ekkert mjög gott veður. Maður nýtur þess bara að skella sér í kjól og sandala og rölta niðrí bæ, skella sér i picknik eða kíkja í dýragarinn :). Ég labba voða mikið að ánni í HC Andersen garðin að njóta sólarinnar eða bara á göngugötuna að skoða mannlífið. Yfirleitt þegar Ernir er búin í skólanum þá labba ég á móti honum og svo förum við yfirleitt í annan göngutúr svona seinnipartinn eða á kvöldin... alltaf út að labba hehe :) Já ég er í þvílikri afslöppun í fæðingarorlofinu.

Við Ernir fórum góðan hjólatúr einn sunnudaginn og fundum alveg frábæran garð sem við ætlum að fara í aftur með smá nesti og gera góðan dag úr 8)

Tinna vinkona mín átti svo fjögra ára afmæli hér um daginn. Ég hlálpaði mömmu hennar aðeins að baka, já þetta er eitthvað sem ég er nú búin að taka upp á hér í DK... baka :p En afmælið var þvílík veisla og þar sem maður kann sér engin hóf þá át ég ekki fyrir 2 heldur örugglega svona 4 hehe :lol:

Á síðustu helgi var 22-25 stiga hiti og þá skelltu flestir Íslendingar sér í friluftsbaðið :) Það var eins og vera á sólarströnd. Þetta er staður sem eru nokkrar sundlaugar og risatún þar sem við sátum á og tókum að sjálfsögðu með okkur nesti og höfðum það næs 8). Við ákváðum að hjóla þangað því það var svo geggjað veður, en á leiðinni heim var ég eitthvað ekki alveg að taka nógu vel eftir og datt á hjólinu, en ekkert mjög harkalega sko! En ég þorði nú ekki annað en að hringja upp á fæðingardeild og ath hvort þeir vildu eitthvað kíkja á mig eða hvað. Jú ég átti nú að koma, fór í rit sem var bara mjög flott og bumbubúinn í þvíliku stuði og hreyfði sig eins og enginn væri morgundagurinn :p Svo fór ég í sónar til að kíkja á fylgjuna oog vá hvað krílið er orðið stórt, með stórar sætar kinnar :d. En svo hélt ég að mér yrði sleppt heim þar sem allt kom svona vel út, en þá eru það einhverjar reglur að maður þarf að vera innlagður í 24 tíma eftir biltu. Þannig Ernir mátti fara heim og ná í tannbusta og einhverja afþreyjingu fyrir mig. Hann kom með tölvuna og sex and the city seríuna og horfði ég á næstum 1 seríu þarna 8| Ég var sett inn á 3-ja manna stofu og svaf þ.a.l ekki mikið um nóttina. Þannig þegar læknirinn kom stofugang daginn eftir mátti ég ráða því hvort ég færi heim eða hvort ég vildi vera fulla 24 klst... ég fór að sjálfsögðu heim að sofa :) Vaknaði svo mjög hress eftir það :)

Ernir var svo í prófi í síðstu viku. Það fer þannig fram að hann kynnir verkefni fyrir kennurunum sem hans hópur hefur verið að vinna að alla önnina og svo koma þeir með spurningar til hans. Ég fór upp í skóla til að sjá hvernig þetta fer fram. Þetta er nú nokkuð stessandi fyrir þá. En hann stóð sig rosalega vel að vanda þessi elska.

Að tilefni þess að hann væri búin í prófin, skelltum við hjónin okkur út að borða s.l föstudagskvöld. Þar sem það gæti nú verið nokkuð í það að við komumst bara tvö saman aftur :d Þetta var rosalega góður matur og mjög skemmtilegur félagsskapur. :) Við fengum okkur forrétt saman, svo að sjálfsögðu aðalrétt og saman ís í eftirmat og kaffi :d. Svo á eftir var bara rölt saman heim eftir yndislegt kvöld :)

Af bumbubúa er allt rosa gott að frétta. Hann vex og dafnar eins og hann á að gera. Ljósan reiknar með að barnið verði 3400-3600gr við fæðingu. Hann er búin að skorða sig og hefur bumban hjá mér sigið töluvert við það :). Við Ernir erum orðin eins klár fyrir komuna eins og hægt er. Það er búið að kaupa eða fá lánað allt sem okkur dettur í hug að við þurfum að nota fyrir krílið. Búin að þvo öll föt, taubleijur og sængurföt. Við fórum um daginn og skoðum fæðingargang sem er bara mjög flottur. Þannig ég róaðist bara töluvert við að sjá að þetta er alls ekki minna tæknilegt en á LSH :d.

Ég er byrjuð að fá nokkuð af fyrirvaraverkum, en nú er bara að sjá hvenær krílið lætur sjá sig. Í dag er hann rúmlega 38 vikur :) En síðasta lagi á hann að koma 1 júlí því þá er hann 42 vikna. Næsti tími hjá ljósunni er svo á mánudaginn... spennó :)

 

Jæja ég held að þetta sé nóg í bili :p

 

Bestu kveðjur frá Odense.

Og endilega skiljið eftir comment, mér finnst svoo roooosalega gaman að sjá hverjir fylgjast með :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.04.2009 09:55:30 / annahuld

Komin í fæðingarorlof :-)

Já þá rann upp dagurinn að ég var genginn 32 vikur og þ.a.l. komin í fæðingarorlof :)

Ég ætla að njóta þess í botn að vera í fríi, gera vorhreingerðingu hér hægt og rólega. Njóta þess að geta farið í pils, ermalausan bol og sandala að njóta sólarinnar í einhvað af fallegu görðunum hér og síðast en ekki síst að gera allt klárt fyrir litla bumbubúann okkar :) Á hverjum degi eykst spenningurinn og á hverjum degi vex buman. Það er ótrúlegt hvað maður getur tengst barninu mikið án þess að hafa séð krílið. Mér finnst þetta alveg merkilegt en alveg yndislegt :d

Við Ernir erum búin að kaupa allt þetta stæsta fyrir krílið eftir mikla rannsóknarvinnu, skoða alla bæklinga osfrv :) Við nýttum okkur tækifærið þegar Inga góð vinkona okkar hér úti var svo almennileg að lána okkur bílinn sinn í 10 daga á meðan hún var á Íslandi :) Við keyptum skiptiborð sem er einnig kommóða, bala til að baða barnið í og svo Emma Ljunga bílstól, skiptitösku og vagn allt í sama lit 8). Vagninn þurfti reyndar að panta en við fáum hann á fimmtudaginn n.k. :) Þannig hér er allt að skríða saman hjá okkur.

Ásdís systir hans Ernis kemur svo 6 maí í heimsókn og ætlar hún að sjá hvað hún á af lilla fötum og koma með eitthvað 8)

Lillinn á að vera næstum 2 kg núna og finn ég vel fyrir því að hann stækkar. En í vikunni komst ég að því að ég geng með lítinn stríðnispúka... veit ekki hvaðan barnið hefur það!! Mér fannst hreyfingarnar eitthvað öðruvísi og minni frá sunnudegi til miðvikudags og ákvað að hringja í ljósmóður. Ég var send niðrá meðgöngudeild þar sem ég lá í monitor í 1 klst og allt kom vel út. Fínn hjartsláttur og hreyfingar. Svo þegar ég kom heim þá fór lilinn að hreyfa sig eins og enginn væri morgundagurinn og um kvöldið átti ég erfitt með að sofna því barnið stoppaði bara ekki hehe :d

Svo á mánudaginn n.k eigum við að hitta ljósmóður og fara yfir fæðinguna, þannig nú liggjum við í lesefni um fæðingar, stellingar, verkjastillandi osfrv :p

En nóg með lillan í bili. Það er ávallt nóg að gera hjá okkur Erni.

Helgina eftir síðasta blogg þá var stelpu og strákakvöld 8) Við skvísurnar hér í Odense skellum okkur í bío á confession of a shoppaholic. Þetta var frumsýningarkvöld og fengum við þvi allar gjafapoka með allskonar nammi, tímariti ofl. Eftir myndina var svo skellt sér á kaffi Kræs í kaffi/öl/kokteila :p Þetta var alveg rosalega gaman. Ég valdi kokteilana fyrir Önnu og fékk mér svo bara súkkulaði kaffi :p. Á meðan þessu stóð hélt Ernir póker kvöld hér hjá okkur fyrir strákana og vakti það mikla lukku:d

En eins og ég sagði hér fyrir ofan þá vorum við á bíl um páskana og nóg var brallað :)

Við skelltum okkur til Flensborgar í Þýskalandi ásamt Balla og Völlu. Og eins og sannir Danir fylltum við bílinn af bjór, nammi og gosi hehe. Þegar heim var komið var fyrsta sumargrillið heima hjá Önnu, þar smökkuðu sumir Þýska bjórinn á meðan ég drakk bara vatn :p En grillmaturinn var æði, með íslenskri piparostasósu mmmm. Svo um miðnætti fórum við Ernir bara heim alveg búin eftir daginn.

Á sunnudeginum var svo farið á rúntin til Svennborg. Þar var bara ekkert í gangi... þar er greinilega ALLT lokað á sunnudögum. En gaman að hafa kíkt þangað 8)

Á skýrdag þá var ákveðið að reyna á sundlaugina í Nyborg, sem er um 30 mín héðan. Það var alveg æðislegt að geta hreyft sig og vera svona léttur í vatninu :d En þessi sundlaug er alveg rosalega flott á danskan mælikvarða en fyrir Íslendinga þá er þetta bara svona lala hehe. Það var einn heitapottur sem tók 6 mans og maður mátti bara vera oný í 10 mín og þá átti að skipta hehe. En ég hugsa að ég eigi eftir að fara þangað aftur :)

Á föstudaginn langa fórum við Ernir svo í legoland. Það var alveg frábært veður og rosalega gaman. Við eyddum heilum degi þarna að skoða og fara í tæki sem ég mátti fara í, það eru ótrúlega mörg tæki sem eru ekki fyrir hjartveika og óléttar konur hehe. Svo er stefnan að fara aftur næsta páska með lillann :d

Ég var svo að vinna á morgunvöktum um páskana. Á Páskadag vaknaði ég með smá illt í maganum og varð svo bara veik í vinnunni. Við vorum búin að bjóða Völlu, Hildi og Balla í mat hér um kvöldið. Þetta endaði nú bara þannig að ég svaf eftir vinnu þar til rétt áður en gestirnir komu, fór í sturtu og reyndi að gera mig eitthvað smá fína. Svo hjálpuðust bara allir að. Ernir gerði snyrtilegt hér hjá okkur, lagði á borðið, Valla og Hildur elduðu svo páskaskinkuna, svo hjálpuðust þau öll að með uppvaskið og Balli var sendur út með ruslið á meðan ég lá bara upp í sófa hehe. En svona á ég yndislegan mann, systir og vini :d

Svo var nú tekið í spil og var ég svona semi með frá sófanum. Svo daginn eftir þá var ég miklu betri. Þannig ég hef náð mér í einhverja sólahrings pest akkúrat á Páskadag. En svona er það bara, þrátt fyrir allt þá var þetta bara mjög gaman :)

Ég fékk alveg frábært bréf um daginn... eða þannig. Skattinum fannst ég ekki borga nóg fyrir áramót þannig ég þarf að borga til baka 6000 dkk. Þetta er alveg merkilegt hvað ég hef þurft að eyða miklum tíma í að fara í skattinn aftur og aftur og tala við misgáfað fólk. En svona er þetta bara... ég bít bara í það súra epli :)

Ernir er komin í golfið hér í Odense með nokkrum Íslenskum strákum. Hann hefur verið að fara með vini sínum sem heitir Pálmi að æfa sig, en þeir voru saman í Hlíðarskóla :) Nú um helgina er svo fyrsta mótið :d. Hér í Odense er nefnilega fullt af flottum golfvöllum.

Í gær var svo minn síðasti dagur í vinnunni. Ég bakaði 2 eplakökur í tilefni þess fyrir samstafsfólk mitt, en það sló alveg í gegn :p Ég fékk mikið af knúsum og ordinasion um að koma með lillann og sýna hann þegar hann kemur í heiminn :d Svo ítrekaði deildastjórinn minn að ég væri ávallt velkominn aftur í vinnu til H4, hún gæti alltaf fundið stöðu fyrir mig. Þannig ég kveð mjög sátt. Eins og fyrstu 3 mánuðirnir voru erfiðir... þar sem ég skildi nú ekki alltaf hvað var í gangi og eftir stofugang þá endurtók ég allt fyrir læknana um hvað planið væri bara til að vera viss um að ég hefði skilið allt. Það hafa allir verið svo þolimóðir við mig á meðan ég var að komast inn í dönskuna. Svo þegar hún var komin þá var þetta bara mjög skemmtileg deild og hef ég lært alveg helling :)

Í dag stefni ég svo á að hitta Ingu niðrí bæ þegar hún er búin að vinna kl 13, kaupa mér óléttu pils og sleikja sólina :d

Svo eru bara 4 dagar í Evu mína og tæpar 2 vikur í Ásdísi og hlökkum við mikið til.

Já þá held ég fari bara að ljúka þessari ritgerð ;). Ég skal svo reyna að hafa styttra á milli blogga hjá mér :)

Þangað til næst þá kveðjum við litla hamingjusama fjölskyldan í bili frá Odense

Anna Huld, Ernir og bumbulíus J

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.03.2009 10:45:54 / annahuld

Vorið komið til Odense

Ernir er komin með miklar áhyggjur af þessu bloggleysi hjá mér þannig það er best að fara bæta úr því :d Eins og fyrirsögnin segir þá er komið vor hjá okkur í Odense, hér er sólin farin að skýna hátt, farin að koma smá blóm í garðana og hitinn ca 6-11 gráður :p

En nóg hefur verið að gera hjá okkur skötuhjúum síðustu vikur. Það var Íslendingaþorrablót hér á sjálfan Valentínusardaginn 14 febrúar. Það voru ekki allir tilbúnir í að fara í matinn heldur vildu frekar bara fara á ballið þannig við skelltum okkur í fyrirpartý þar sem pantaður var að mig minnir indverskur matur... sannkallaður þorramatur og haft gaman fram að balli :d Ég er einmitt búin að setja inn myndir frá þessu partýi. Eftir það keyrðum við Ernir stuðboltunum á ball og keyrðum svo bara sjáf heim, svona erum við orðin stabil hjónin hehe :)

Svo er ég nú aldeilis búin að fara á mína fyrstu tupperver kynningu hér í Odense og ótrúlegt hvernig ég hef geta lifað án þessara hluta hingað til hehe. Ég keypti mér box undir ost og grænmetisskál og er ég bara ánægð með kaupin :d

Við Ernir skelltum okkur svo í smá ferðalag helgina 20-22 febrúar. Við byrjuðum að kíkja í Köben að rölta aðeins strikið þar sem Ernir hafði ekkert farið þangað síðan við fluttum hingað út. Svo var ferðinni heitið til Gautaborgar í heimsókn til Sigrúnar frænku hans Ernis og fjölskyldu hennar :d Hún bý þarna ásamt manni sínum Jhon og tveimur börnum. Einar sem er rúmlega 2-ja og Viktor sem er nú bara 6 vikna :d.

Við komum um kvöldmatarleytið á föstudeginum, Sigrún og Einar náðu í okkur á lestarstöðina á meðan var Jhon heima að baka geðveikar pizzur. Við borðuðum pizzu og eftirrétt og svo var mikið spjallað, rosa gaman. Þarna voru 3 tungumál í gangi, þar sem ég kann ekki sænsku og Jhon ekki íslensku hehe. Ég talaði dönsku við Jhon, annars var töluð sænska og íslenska, mjög gaman :lol:

Á laugardeginum var vaknað snemma og fórum við öll saman á sædýrasafn og svo héldu Jhon og Sigrún heim með strákana og við fórum og skoðuðum bæjinn og versluðum aðeins á okkur og væntalegan erfingjann :d. Svo um kvöldið náðu Ernir og Jhon í kínverkan mat og horfðum við á undankeppnina í Sænska eurovision... mjög spennandi og með var borðað íslenskt konfekt sem við Ernir fengum í jólagjöf  frá Ara 8)

Á sunnudeginum þá fórum við nú í góðan göngutúr öll saman og enduðum á kaffihúsi og fengum okkur heitt að drekka. Það var ekki komið eins mikið vor í Gautaborg eins og hjá okkur hér í DK. Það var snjór og alles hehe. En svo lá leið okkar heim til Odense, við vorum komin um kvöldmatarleytið ánægð eftir mjög skemmtilega ferð :d

Ég er búin að setja myndir af þessari ferð inn á bloggið :) 

Snemma í Mars var okkur svo boðið í mat til Hadda og Bjarney, namminamm.... rosalega gott :p Svo var nú stefnan tekið í bío en þegar við komum í bíóið var aldeilis uppselt á myndina, þanngi það var bara haldið aftur heim til Hadda og Bjarney að horfa á atvinnumennina okkar sem eru frekar skemmtilegir þættir :)

Þann 6 mars þá átti Anna 26 ára afmæli og það var haldið partý :) Ég bauðst til að baka köku... en það endaði nú þannig að Valla bakaði hana en ég var nú með svuntu allan tímann hehe. Við settum 26 kerti á hana og sungum afmælisöngin fyrir Önnu :d Þegar við vorum búin að borða og svona þá var tekið í spil, stelpu og stráka trivial... ógislega gaman... sérstaklega þegar ég er með Völlu systir í liði :d.

Daginn eftir fór Ernir svo í skólaferðalag til Lissabon í 5 daga. Þar var 22-25 stiga hiti og voða gaman hjá honum J Á meðan var ég mikið með Völlu og Ingu, sem var bara mjög fínt :)

Svo kom Ernir heim með föt fyrir litla bumbubúann og digital myndaramma fyrir mig, ekki amalegt :p

Svo eru það helstu fréttir frá Íslandi:

Það kom að því að hreiðrið hjá mömmu og pabba á Íslandi tæmdist... Já Sigurjón litli bróðir er bara farin að búa með Silju sinni :d Þau leigja íbúð í Hafnafirðinum og eiga líka lítinn kettling, ég hlakka voðalega mikið til að kíkja í heimsókn til þeirra í sumar :).

Svo var Pálína mín líka að kaupa sér íbúð, til hamingju með það skvís. Get ekki beðið eftir að kíkja á þig :)  Já það verður nóg að gera í sumar þegar við komum :d

Svo nú síðustu vikur hafa nokkrir verið að melda sig í heimsókn :d Fyrst koma Sigurjón og Silja 8-19 apríl. Svo kemur Eva mín og verður hjá mér frá 28 apríl – 1 maí, en svo ætlar hún til Arhus að heimsækja vinkonu sínar þar. Svo ætla mamma og pabbi að koma 26 júní – 7 júlí Þannig þetta verður bara tóm gleði :d

Annar af bumbubúanum þá er allt gott að frétta. Við vorum síðast hjá ljósmóður í gær þar sem allt er eins og það á að vera. Ég er komin í ca 70% vinnu því bakið mitt er eitthvað skrítið hehe. En ég er búin að vera í sjúkraþjálfun og gengur það sæmilega.

Ég finn sterkar hreyfingar oft á dag og okkur finnst það alltaf jafn spennandi þegar barnið ákveður að hreyfa sig aðeins hehe. Ljósmóðurin áætlaði í gæt að barnið væri orðið ca 1 kg :d Það er alveg helmingi stærra barn en ég hef sinnt á vökunni ;) Þannig hér er bara tóm hamingja. Nú erum við búin að plana að fara í apríl að kaupa vagn, kommóðu ofl, þar sem Inga er svo almennileg að lána okkur bílinn sinn á meðan hún verður á Íslandi :d

En þar til næst... hvenær sem það verður hehe

 

Bestu kveðjur Anna Huld, Ernir og bumbubúinn

Ps endilega skiljið eftir comment, það er svo rosalega gaman að lesa hver fylgist með :d


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.02.2009 16:41:21 / annahuld

Vorið á næstu grösum :)

Já þá er komin tími á smá fréttir af okkur baunabúum:p

Það er allt komið í góða rútinu eftir fríið á Íslandi. Nóg að gera í skóla sem og í vinnu. Vinnan mín er búin að vera algjör kleppur allan janúar og það sem er liðið af febrúar. Búið að vera meira en full deild af veikum börnum og foreldrum í krísu vegna þess. En þetta gengur bara vel að vinna, danskan er örugglega mjög fyndinn hjá mér en þau í vinnunni virðast skilja mig og segja að mér fari mikið fram :)

Svo ég telji aðeins upp hvað við höfum verið að bralla. Ég fer mest inn á hvað við bröllum um helgar þar sem við stundum bara vinnu og skóla á virku dögunum :). En ég ætti nú að nefna það að nú er Ernir búin með þann áfanga í dönsku skólanum sem hann ætlaði að taka. Tók próf og stóðst það með prýði :p Svo er mitt próf á morgun og svo ætla ég líka að taka mér frí frá skólanum og sjá svo til hvað maður gerir næsta haust :p Maður er ekki að læra svo mikið nýtt þar lengur. Lærir mest með að nota dönskuna bara :d

Þar síðustu helgi var nóg að gera. Nú er á föstudagskvöldum hjá okkur danska X-Factor, mjög spennandi og skemmtilegt :d Svo á laugardagskvöldinu var spilakvöld hjá okkur með Hadda, Bjarney og Bjarma. Stelpur á móti strákum... hmmm gerist ekki aftur þar sem Haddi er eins og Ernir.... þeir vita ALLT... En það var svo sem ekkert valtað yfir okkur Bjarney :p

Daginn eftir reyndi ég að nálgast húsmóðurina í mér og ákvað að halda smá kaffiboð. Bauð Völlu, Önnu, Ingu og litlu skvísunum hennar. Ég bakaði muffins og pönnukökur  Muffinsin hefðu mátt vera aðeins styttra inni!!:) En alveg ætar en pönnukökurnar voru nú mjög fínar. En æfingin skapar meistarann ekki satt :)

Helgina eftir það var nú vinnuhelgi hjá mér og Ernir tók því bara rólega heima. Beið eftir mér á laugardagskvöldið þegar ég kom heim, búin að kaupa ís...hmm og mig var búið að langa í ís í MARGA daga hehe.... skoraði hátt þar :lol:

Þessi helgi sem er að líða er nú búin að vera rosalega fín. Á föstudagskvöldið var að sjálfsögðu X-Factor :d Svo var farið að sofa snemma (ég reyndar um kl 22!) eitthvað þreytt eftir vikuna hehe. En svo var vaknað snemma á laugardeginum og farið á grænmetismarkaðinn, keypt grænmeti með matnum í vikunni, mangó og gulrætur... maður getur alveg misst sig þarna hehe. Eftir það fór ég að vesinast með Völlu systir. Fórum fyrst til Þórey en hún er íslenskur snyrtifræðingur hér og gerði hún okkur rosalega fínar :) Þá var hægt að fara í IKEA og Jysk til að klára kaupa húsgögn í íbúðina hennar Völlu og áttum við systur mjög skemmtilegan dag :) Nú kemur þetta allt á miðvikudaginn, og býst ég svo við góðu infó partýi eftir allt þetta búðaráp hehe :p

Um kvöldið fórum við hjónin svo í göngutúr og þegar við komum til baka var nú bara diskótek í íbúðinni hér í blokkinni... Anette nágrannakona okkar gat ekki verið inn í íbúðinni sinni vegna láta og fékk bara unglingastæla þegar hún fór upp og reyndi að ræða við gestgjafann. Þannig við buðum henni bara hingað yfir í Mangó og horfa með okkur á bíomynd sem við höfðum fengið "lánað" á netinu :) Partýðið var sem betur fer búið um kl 01 og þá fórum við í háttinn. Vöknuðum svo snemma og fórum út að labba í frábæru veðri, sól og manni leið bara eins og það væri að koma vor :) Við kíktum í tvö söfn til að vera smá menningarleg. Eftir það fórum við í bakarí og tókum með heim rúmstykki, hituðum svo kakó og tókum því svo rólega eftir það :)

Eftir 2 vikur ætlum við svo að skella okkur í smá ferðalag. Byrja í Köben og rölta þar aðeins um í nokkra tíma, þar sem Ernir hefur ekkert farið þangað síðan við fluttum. En ég reyndar tvisvar hehe. Svo ætlum við að kíkja í Gautaborg að heimsækja Sigrúnu frænku hans Ernis og fjölskyldu hennar. Okkur hlakkar voða mikið til :d

Svo erum við búin að kaupa okkur rosalega flotta myndavél þannig ég ætla að setja inn nokkarar myndir inn á bloggið :)

Með bumbubúafréttir þá er nú allt gott að frétta. Ég vex eins og blómstrið eina hehe :p Og loksins byrjuð að finna hreyfingar, byrjaði þegar ég var um 19 vikur :) Við fórum í sónar þar sem allt kom vel út. Fylgjan er að framan og þessvegna byrjaði ég að finna hreyfingarnar svona seint, en okkur var nú farið að gruna það :) Barnið okkar er mjög þrjóskt og vildi ekki snúa sér hehe þannig við fengum mynd af krílinu sem snéri í okkur bakinu hehe. Það gekk illa að skoða varirnar þar sem lillinn var mikið að klóra sé í nebbanum og svona hehe, en það gekk að lokum :lol: Ernir er einnig farina að finna hreyfingar og finnst okkur þetta alveg æðislegt, nú getur maður bara ekki beðið eftir að hitta þennan stórkostlega einstakling :)

Jæja en þar til næst þá vil ég biðja fólk sem er að lesa að kommentera að því mér finnst svo gaman að sjá hverjir eru að kíkja :) Og svo vona að Eva mín fari nú að finna ferðafélaga til að koma og heimsækja okkur :d

Nóg í bili
Bestu kveðjur Anna Huld og lillinn :)


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 10:21:41 / annahuld

Gleðilegt nýtt ár

Ég ákvað að skella inn bloggi áður en það væri orðin MÁNUÐUR síðan síðast hehe :) 

Já margt hefur drifið á daga okkar síðan í síðasta bloggi.

Klárlega er heimferðin til Íslands efst í huga. Við komum heim á sunnudagskvöldi eftir á ég hafði verið á morgunvakt. Hitti Erni bara á lestastöðinni þar sem þessi elska var búin að fara 2 ferðir með farangurinn okkar ;) Við vorum svo heppinn að Bjarney og Haddi áttu sama flug og fórum við því saman. Mikill spenningur í hópnum á leiðinni heim. Flugið var svona lala... mér fannst mikil ókyrrð og í þetta skiptið fékk ég mér nú ekki bjór til að róa mig þar sem það er nú ekki holt fyrir bumbubúann minn ;) Þetta var fornaldarflugvél sem ekki var með sjónvarpi og flugfreyjurnar voru með sýningu um öryggi um borð hehe já það hef ég ekki séð í MÖRG ár, enda flogið hingað til með Icelandair :p En það var jólastemming um borð, þar sem boðið var upp á malt og appelsín ásamt flatköku með hangikjöti... hmm..nammi..nammi..namm :p Svo þegar ferðin var ca hálfnuð var aldeilis Hera Björk og harmonikkuleikari með að spila og syngja jólalög í vélinni, það var alveg æði hægt að biðja um óskalög og alles :)

Við lentum í Keflavík og nóg var af snjónum og vorum við Ernir annsi sátt við það, en daginn eftir var hann reyndar farinn vegna rigninga... en kom svo aftur á jóladag ;) en svona er bara Ísland :)

Fyrsti dagurinn var nú nóg að gera. Vaknaði á undan klukkunni þar sem ég var svo spennt að fara í morgunkaffi til Evu minnar á nýja heimilið hennar :d Þegar ég kom þá endaði ég nú á að segja að við værum nú bara tvær því húsfrúin var búin að fylla borðið af mat hehe :p En nei aldeilis vorum við ekki einar, Sonja, Pálína, Thelma, lillan hennar og systir voru aldeilis á leiðinni líka :) Þetta var alveg æði að hitta þær allar. Takk Eva mín :) En kl rúmlega 12 þurfti ég að drífa mig í klippingu sem var orðin MIKIL þörf á (búin að hafa bad hair day í ca 2 mánuði hehe). Kom rosalega fín þar út og þá lá leið mín heim til mömmu og pabba. Ohh það var svo gott að koma heim. Fékk soðna ýsu og flatkökur í matinn :p namminamm. Hitti þar Sigurjón bróður og svo var Valla einnig komin :) Þannig mánudagskvöldið fór í kósý með familíunni :)

Jólin voru svo rosalega fín hjá okkur. Vorum nokkuð mikið í sitthvoru lagi að sinna öllum, nema náttúrulega í jólaboðunum heima hjá mömmu og pabba annari jólum og tengdó á jóladag :) NÓG að gera. Fórum í spilakvöld til Auðuns og Hrefnu á jóladagskvöld og það var mjög gaman, hlakka til að endurtaka það :p 

Milli jól og nýárs voru svo 2 saumó hjá mér. Fyrst sjúkraliðasaumó heima hjá Lilju. Það var rosa gaman að hitta skvísurnar mikið spjallað og haft gaman. Sólborg litla kom með mömmu sinni og vá hvað hún er orðin rosa stór.... úff hvað hún verður orðin stór næst þegar ég sé hana... :) Svo var hjúkkusaumóinn heima hjá Evu og var mikið spjallað og hlegið :d Já þessir saumaklúbbar klikka hreinlega aldrei. Takk fyrir mig stelpur  :lol:

Ernir fór í svaka póker heima á Auðunni þar sem potturinn var nokkuð stór... en hann vann reyndar ekki þessi elska enda svo heppinn í ástum hehe :d

Áramótin voru svo bara róleg og fín :d

Svo var haldið heim á leið snemma 2 janúar. Vá hvað það var erfitt að kveðja alla. En I’ll be back hehe :lol: Við hittum Bjarney og Hadda aftur í fluginu á leiðinni heim. En ég held að við öll höfum náð að sofna eitthvað enda þreytt eftir maraþonið á Íslandi :)

Það var nú bara gott að koma heim þegar allt kom til alls. Við fórum í búð og svona. Svo var bara sofnað snemma fyrsta kvöldið enda beið mín svo morgunvakt daginn eftir.

Vinnan hjá mér er kleppur þessa dagana, alveg stútfull deild og NÓG að gera enda flýgur tíminn :) Ég er formlega hætt í aðlögun og farin að vinna sjálf sem er rosalega gott og gengur bara vel :)

Á síðustu helgi var svo flakkarakvöld hjá Ingu.. rosa gaman, allar með eitthvað nýtt til að deila. Mjög nauðsynlegt fyrir mig þar sem tölvan mín er í download verkfalli :$. Anna var með nóg af nýju efni enda með nýjan flakkara sem hún fékk í jólagjöf :p

Annars gengur bara vel hjá bumbubúanum að stækka. Er orðin 18 vikna í dag og bíðum við nú SPENNT eftir fyrstu hreyfingunum... þetta kríli er svo rólegt að ég hef ekkert fundið enn! :)

Annars þangað til næst... þá vil ég bara segja... opið fyrir heimsóknir til okkar, endilega hugsið það :) Gengið stabilt núna og svona hehe :)

Over and out


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 13:05:46 / annahuld

Ekki á morgun heldur hinn... :-)

Já tíminn flýgur... ekki á morgun heldur hinn komum við loksins heim í jólafrí :d... ekki það að ég sé búin að vera telja niður ... hmmm hehe.

En það sem hefur drifið á daga okkar síðan síðasta bogg...:
Ernir fór í prófið á föstudaginn síðasta og brilleraði :-) já hann er klár minn unnusti minn:) Hann  var búin að fá góða hjálp við að undirbúa fyrirlesturinn frá Ingu og Önnu og erum við afar þakklát ;) Þannig að ég útskýri hvernig þetta fer frá þá er þetta eitt próf sem önnin stendur og fellur með. Þetta er kynning (á dönsku) á verkefni sem hans hópur hefur verið að vinna alla önnina, svo er hann spurður spurninga og svo fær hann einkunn 8|  Svo eftir prófið ætluðum við að hafa það afar huggulegt, þar sem við höfðum ekki mikið sést síðustu viku :) en Ernir var alveg búin eftir þetta allt og sofnaður fyrir kl 9 um kvöldið hehe.

Svo var vaknað snemma á laugardeginum og farið í jólagjafaleiðangur... það er alltaf svo gaman :d Svo um kvöldið fór Ernir í julefrukost með bekknum og ég í mat til Ingu. Þar vorum við Valla, Inga og nafna að HÁMA íslenskt lambakjöt... hmmmnamminamm:o Takk fyrir matinn :) Svo þegar við vorum búnar að melta aðeins var farið að spila patý og co og trivial... rosa skemmtilegt kvöld.... en næst fá Inga og Valla ekki að vera saman í liði í trivial... hmmm heh :lol:

Daginn eftir ákvað ég að leyfa Erni að njóta þess að vera þunnur heima og ég fór með Völlu systir í jólagjafaleiðangur... og þetta var mjög skemmtilegt svona systrastund :) Það var verslað allt á 5 klst og gerð bara nokkuð góð kaup :)

Síðustu viku hefur lítið gerst nema vinna...vinna...vinna og Ernir hefur verið í valfagi sem er nú hálfgert chill eftir prófið ;) ogggg já skrifa nokkur jólakort sem eru á leiðinni til íslands núna :d

Núna er ég bara að þvo, hlusta á jólagesti Björgvins og Frostrósir til skiptis og pakka niður :) Svo þarf ég að kíkja í HM, Fötex og svo þurfum við að kaupa lestarmiðana í dag til Kastrup :)
Svo bara vinna morgunvakt á morgun og hinn og svo HEIM :d

Hlakka til að sjá sem flesta, verð með mitt gamla íslenska símanúmer og Ernir líka 8)

Bestu jólakveðjur Anna Huld og Ernir :d

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 11:15:24 / annahuld

Orðin 28 ára... úff!

Já Anna letibloggari loksins sest við... þetta er nú orðið slæmt þegar Ernir er farin að skrifa þetta á til minnis miða hehe 8|

En það er nú margt búið að gerast síðan síðast :)

Á þarsíðustu helgi mættu við skötuhjúin á Íslendingaball þar sem hljómsveitin Malakoff lék undir dansi :) Þeir voru nú bara nokkuð góðir. Við mættum þarna góður hópur og skemmtum okkur mjög vel. Eftir ballið trölluðum við niðrá Rayans (ísl bar) og þar mættu allir íslendingarnir og tóku yfir staðinn þar sem fréttir herma að e-h hefðu tekið yfir trúbadorinn og farið að spila “Hjálpaðu mér upp” með góðum undirteknum hehe, já íslendingar kunna að skemmta sér hvar sem þeir eru í heiminum staddir :lol:

Svo var vikan á eftir að búa undir komu Evu og Pálínu með mikilli tilhlökkun. Ég bakaði súkkulaðibitakökur og við Valla hjálpuðumst að með spesíubakstur :o

Svo var allt þrifið hátt og lágt svo hægt væri að setja upp jólaskraut :)

Ég er reyndar bara með eina seríu þar sem ekki eru til sogskálar í DK.!! Hvað er málið með það ... en jæja ég verð bara að láta þetta duga.

 

Svo kom stóri dagurinn 29 nóvember og skvísurnar mínar mættu á svæðið, ég og Valla tókum spenntar á móti þeim :)

Það var byrjað á að koma heim með töskurnar í stutt stopp, því við þurftum að ná HM en hún lokaði kl 16! En það náðist :) Svo hittum við Siggu og Báru vinkonur Evu, kíktum á kaffihús og skoðuðum bæinn :) Svo rétt misstum við af þegar kveikt var á jólatréinu en við náðum nú að skoða það og taka myndir :lol: Svo var farið heim að chilla fyrir kvöldið. Borðuðum og svo var farið að hafa sig til. Valla hélt svo partý fyrir heiðusgestina :) Þar var mikið drukkið, hlegið og sagt margar góðar sögur hehe :) Við vorum nú í partý til 2:30 en þá var haldið niðrí bæ á Heidis.. já þar var sungið og dansað... mikið fjör. Svo kíkt við í smá pizzusneið áður en við fórum heim að sofa 8)

Dagurinn eftir byrjaði erfiðlega að sökum þynnku, en ég bakaði amerískar pönnukökur fyrir gestina með bláberjum, jarðaberjum og sýrópi. Pálína var nú fljót á fætur en Eva ætlaði bara ekki að vakna... svo hringdi síminn og þá ránkaði mín við sér J Svo lá leiðinn í Odense Zoo, þar voru mörg falleg dýr. Ég og Ernir keyptum okkur aldeilis árskort og ætlum að vera dugleg að kíkja :d

Svo var aðeins túristast að skoða bæinn, HC Andersen jólamarkaðinn og endað í slik búðinn og keypt fullt af nammi. Ekki ég samt þar sem stelpurnar komu með fullt af íslensku nammi fyrir mig... umm nammi nammi namm :d Ernir reyndar skildi ekki alveg að það þyrfti að kaupa nammi þar sem þær hefðu komið með svo mikið... en ég var nú ekki tilbúin til að deila því öllu hehe :) En svo borðuðum við fínan mat um kvöldið, hamborgarahrygg með öllu tilheyrandi :) Svo var bara video og kósý, sumir sváfu meira en aðrir yfir myndinni hehe :) Eftir myndina var svo mikið spjallað þegar þyrnirós vaknaði hehe.

Svo kom LOKSINS 1. desember. Erfitt að eiga bara afmæli einu sinni á ári hehe. Dagurinn byrjaði á að ég fékk að opna afmælispakkana mína :d Eva og Pálína gáfu mér íslenskan jólasvein eins og ég er að safna. Mamma og pabbi gáfu mér kjól og tengdó hanska og endurskinsmerki með bleika borðanum og pening svo fékk ég seinna um daginn pakka frá Erni, Georg Jensen kaffikönnu og mjólkurkrús :d Já takk allir saman, ég er alveg rosalega ánægð :)

En svo lá leiðinn í Bilka og Rosingard shopping center :) Þar sem eitthvað var hægt að versla. En vegna gengis var mikið pælt í hvað væri verið að kaupa og hef ég oft sé fleiri innkaupa poka en þetta :s

Svo komum við heim og gerðum okkur klára. Fórum flott út að borða á Kínverskan stað :) Komum nokkuð seint heim og þá var nú komin háttatími á mig og Erni þar sem við þurftum að vakna snemma daginn eftir í vinnu og skóla. Stelpurnar skelltu sér til köben þar sem leið mín lá eftir vinnu :d

Röltum aðeins strikið, borðuðum á Jensens Böfhus (æðislegan mat) svo var kíkt í Jóla Tívolíð. Við fórum nú ekki í nein tæki heldur létum það nægja að horfa á aðra öskra í tækjunum :d

Svo kom að því að kveðja... það var sko ekki auðvelt og var lestarferðin heim mjög döpur :( En núna eru bara 17 dagar í að ég hitti þær aftur :p

Elsku Pálina og Eva, takk æðislega fyrir heimsóknina, þetta var alveg æðislegt :p þið eruð bara gull! :d

 

 

En eftir annasama viku sit ég nú bara veik heima í dag. En ég er búin að komast að því hvernig ég set inn myndir og er því búin að setja inn fyrsta myndaalbúmið, af heimsókninni hjá Evu og Pálína :p Set kannski fleiri inn í dag :)

 

Bestu kveðjur Anna Huld sem kemur heim eftir 17 daga og tel niður :d

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 17:13:06 / annahuld

Smá fréttir af okkur skötuhjúum :-)

Já LOKSINS LOKSINS nenni ég að setjast við tölvuna og blogga :) Ég hef nú ekki margar ástæður fyrir blogleysnu nema síðustu viku hefður tölvan mín verið í verkfalli... eigandanum til mikillar gremju... en Ernir náði að gera við hana fyrir mig og því höfum við tölvan náð sáttum :d


Fyrsta heimsóknin er komin og farin. Já tengdó voru hér hjá okkur á þarsíðustu helgi. Þetta var rosalega gaman. Ernir byrjaði nú á að fara með mömmu sína í Bilka um leið og hún renndi inn í bæinn. Svo um kvöldið var bara haft það gott og spjallað mikið. Laugardagurinn var tekinn snemma og fórum við á grænmetismarkaðinn... þar var verslað mikið grænmeti og margir ávextir. Svo fann Dagný einning ostavagninn og gat eitthvað verslað þar :d
  Svo eftir það lá leiðinn upp í Rosengard center (Kringluna). Þar var aðeins kíkt í HM.... hehe já maður finnur alltaf eitthvað þar :)

Seinni partinn þegar við vorum búin að ná upp smá orku aftur var tekinn göngutúr niðrí bæ og skoðað aðeins göngugötuna. Um kvöldið var svo farið út að borða á rosalega flottann stað sem heitir Den gamle kro, en þetta hús er frá 1688 J Já þetta var rosalega góður matur í góðum félgasskap :)

Sunnudagurinn var svo tekinn snemma. Við skötuhjúin bökuðum amerískar pönnukökur fyrir gestina með sýrópi og jarðaberjum...hmmm...og det var sa dejlig :d

Svo var farið út að ganga. Við kíktum betur á göngugötuna, fórum í skólann hjá Erni og sáum hvernig hann býr í skólanum og svo var endað í HC Andersen have J Svo seinni partinn var tími fyrir þau að fara halda heim á leið, ég var nú aðeins abbó og langði alveg aðeins með og kíkja á Ísland hehe. En eftir stóðum við með smá klökk í hálsinum en hlökkum bara til að koma heim um jólin og hitta þau aftur :)

Já sú helgi leið rosalega hratt enda mjög skemmtileg og við virkilega heppin með veður:) Takk kærlega fyrir okkur :d

Á síðustu helgi var svo Jule tuborg lestin í bænum, ég held að Sonja af öllum viti hvað það þýðir hehe :lol: En við ákváðum í tilefni dagsins að halda matarboð, við buðum Kalla vini hans Erni og Völlu systir, svo kíkti Balli aðeins á okkur J Við misstum reyndar af lestinni sjálfri en fórum niðri bæ þar sem gleðin heldur áfram á börunum eftir að lestin er farin....lengi lengi frameftir hehe. Já Jule Tuborg klikkar aldrei:d


Annars gengur allt sinn vanagang hér hjá okkur. Ernir er mikið í skólanum þessa dagana enda að nálgast próf. Ég held áfram að aðlagast vinnunni, var einmitt í samtali í síðustu viku og eru þær mjög ánægðar með mig
J Ég fékk eitt komment... að ég væri með símafóbíu... hehe sem er svo rétt. Ég forðast símann eins og heitann eldinn, því ég er svo hrædd um að skilja ekki hvað er sagt hehe. En við ákváðum að hefja baby stepst hehe. Já í dag byrjaði það, ég hringdi þó nokkur símtöl og það gekk bara að óskum... það var meira segja klappað fyrir mér í fyrsta sinn, en þá var ég að hringja í leigubíl fyrir eina mömmuna heheheheh J


Í dag er svo 18 daga í að Eva og Pálína koma til mín
J Já ég tel sko niður og get ekki beðið eftir því að hitta þær. Enda markt að sýna og snakka om J


Aðeins um veðrið þar sem við Íslendingar erum dugleg að tala um það. Hér er búið að vera 8-10 gráður en reyndar síðustu daga hefur ringt nokkuð mikið. Mér er sagt að veturinn skelli á í jan eða feb hér í DK hehe J

Bestu kveðjur á Klakann 

Anna Huld ofurbloggari hehe

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 14:12:24 / annahuld

Hasar í Odense

Já þá er langt síðan síðasta blogg, ég hef bara ekki alveg verið með skáldargyðjuna yfir mér (eins og góð vínkona mín myndi segja):)

Annars er nú komin góð rútína á heimilið okkar hér í Odense. Ég vakna 05:45 á morgnanna til að fara hafa mig til fyrir nýjan vinnudag. Ernir er nú duglegur að vakna með mér ef hann er að fara í skólann og það er rosalega gott (svo rosalega erfitt að fara á fætur ef hann hefur það rosa gott undir heitri sæng að kúra hehe):lol:

Svo hjóla ég í vinnuna og reyni að gera mitt allra besta, hjóla svo heim kl 15 og get bara ekki meir. Leggst þá gjarnan fyrir framan sjónvarpið og horfi á friends í smá tíma til að safna smá orku 8|

Vinnan gengur bara vel, ég er farin að vera með börn með svona einfaldari vandamál, s.s astma eða hitakrampa. Þetta er rosa gaman, þau eru svo þolimóð að reyna skilja hvað ég er að segja og hjálpa mér gjarnan ef ég finn ekki orðin :) Ég er meira að segja farin að fræða börn og foreldra um t.d hvað er astmi og hvernig geta asmalyf virkað á dönsku að sjálfsögðu :d

Ég var í smá spjalli með leiðbeinandanum mínu á föstudaginn, henni fannst þetta ganga bara vel hjá mér, sagðist mikið finna það að ég væri vön að vinna með börn og forerldra og kynni vel að lesa þarfir þeirra :) Einnig fannst henni danskan hjá mér strax vera betri :) Svo þetta er allt að koma hjá mér. 

Það er búið að vera haustfrí í öllum skólum, þannig Ernir er búin að vera í viku fríi frá háskólanum og við bæði frá dönskuskólanum. Danir leggja mikið uppúr því að frí sé FRÍ... þannig að ekkert er sett fyrir haustfríið hehe :) Þannig að þessi vika hefur verið svona nokkuð róleg hjá Erni svona skólalega séð en hann hefur verið mjög duglegur heima fyrir  í staðinn :)

Valla systir er flutt hingað til Odense og hefur búið hér núna í 1 viku, til hamingju mað það skvís :) Hún aldeilis kom sá og sigraði :) Á þriðjudeginum eftir að hún kom þá átti hún 2 atvinnuviðtöl og síðar þann dag þá fékk hún stöðu sem lífeindafræðingur hér á sjúkrahúsinu. :) Geri aðrir betur að fá vinnu innan 2 sólahringa frá komu :) en hún byrjar að vinna 1. nóvember, til lykke Valla mín :d

Annars var rosa gaman hér um helgina hjá okkur. Haddi, Bjarney og Valla komu hingað í spilakvöld í gær. Þar var rifið upp partý og co extreme og trivial, skipt var í lið stákar á móti stelpum. Strákarnir unnu partý og co en við stelpurnar rústuðum trivial :). Mikið hlegið og haft gaman. Svo þegar klukkan var eitthvað rúmlega 02 þá ætluðu gestirnir að fara heim. Það voru búin að vera einhver læti hér á neðri hæðinni hjá hórunum (já það eru hórur á neðri hæðinni hjá okkur) sem eitthvað voru að aukast. Þannig ég kíkti út í gluggann og eftir smá þá var hún kominn út með eitthvað lak utan um sig að rífast við einhvern kall sem var alltaf að segja á mjög lélegri ensku “were is my money” “were is my 200 krónas” Eftir smá þá missti hún lakið og stóð þarna í rosarosalega efnislitlum nærfötum8| Við hringdum á lögguna því okkur leyst bara ekkert á þetta og hún var kominn innan 1 mín. Við forvitnu íslendingarnir lágum að sjálfsögðu öll út í glugga að fylgjast með hasarnumJ Löggan lýsti upp í gluggann og benti okkur að koma niður og spjalla við sig, þær spurðu nokkrar spurninga og svo fóru þeir. Eftir þetta féll allt í dúnalogn, gestirnir okkar fóru heim og við að sofa... úff já spennandi að heimsækja okkur hehe. Takk samt fyrir gott kvöld :d

Í dag vöknuðum við nokkuð spræk. Ákváðum að fara í hjólatúr sem endaði á að vera 1,5 klst. Þetta var alveg æði, fórum í einhvern rosalega flottann garð með allskonar leiktækjum, körfuboltavelli, fótboltavelli, hægt að fara í blak eða borðtennis, sitja við ánna og borða nesti (sem við gerðum) og einnig hægt að grilla þarna. Já þig sem heimsækið okkur við skulum gjarnan sýna ykkur staðinn :) Ekki alveg kominn vetur hér þar sem við hjóluðum bara úti á peysunum, já hér var 13 gráður og sól í dag :)

En svona að lokum þá var ein að mínum bestu vinkonum að lýsa því yfir að hún væri aldeilis búin að hitta þann eina sanna J Til lykke Eva mín og ég hlakka til að koma í late aðventu kaffi til ykkar :d

Þangaði til næst þá biðjum við skötuhjúin að heilsa í bili J

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 16:07:33 / annahuld

Byrjuð að vinna

Helló
Já þá er ég loksins orðin vinnandi kona aftur....ohhh það er svo ljúft að geta sagt... ég er farin að vinna :d Já... ég byrjaði að vinna 1. október. Fyrsti dagurinn þá mætti ég kl 08, ég fékk vinnuföt (buxur og jakka... ekki Kjól eins og ég var hrædd um hehe), svo var ég kynnt fyrir Mariönnu, en hún sér um nýja hjúkrunarfræðinga fyrstu dagana þarna á H4. Við erum 4 nýjar að byrja svo að hún sér um okkur allar. Hún sýndi okkur deildina og svo allann barnaspítalann, en þetta er allt rosalega flott. Barnaspítalinn opnaði í apríl 2008...svo hann er alveg splunku nýr :)
Fyrstu 5 dagarnir fara í það að Marianna er að segja okkur frá starfsemi deildarinnar og hvernig allt fer fram. Svo held ég að við fáum að hitta sjúklingana hehe. Dagurinn byrjar á því að við mætum kl 07 og svo hlustum við á rapport, svo er kaffi (sem er svona hyggelig stund þarna, allir setjast saman og borða morgunmat milli 08-08:30)  og svo hefst sögustund með Maríönnu og stendur hún til um kl 15 á daginn :) Hún talar svo þvílíkt hratt og mikið að þegar ég kem heim þá er ég nokkurnveginn heiladauð og sofnuð kl 21-22 á kvöldin hehe. En mér gengur nú betur að skilja en ég bjóst við... og maður skilur alltaf meira og meira :) Ég stefni á að vera orðin nokkuð klár um jólin 8)

En smá um deildina: Þetta er sem sagt barnadeild með börn á aldrinum 0-14 ára. Þarna koma þau með ýmsa smitsjúkdóma, astma, heilahimnubólgu, hitakrampa, ónæmisbæld ofl ofl. Það er rosalega mikið að læra og mikið nýtt fyrir mig.  Inn á deildinni starfar leikskólakennari og er leikstofa þarna fyrir börnin (sem er rosalega flott... mig langði rosalega mikið bara að fá að leika mér í smá stund hehe:)) Það er smá garður fyrir okkar deild sem er alveg afgirtur og mikið notaður á sumrin, með ýmsum leiktækjum, körfu til að geta farið í körfubolta ofl ofl :)
Já ég hef góða tilfinningu gagnvart þessari deild. Maður finnur strax að það er góður mórall þarna og mikið djókað :) Ég er strax búin að plana fyrsta djammið mitt með deildinni, það er rosa fest með öllum barnadeildunum 7 nóv og ég læt mig að sjálfsögðu ekki vanta 8)

Bestu fréttirnar þessa vikuna: Mér var boðið að vera í frí öll jólin og áramótin :d ég er svo massa massa glöð. Deildastjórinn minn Karin var samt alveg eyðilögð yfir því að ég gæti ekki fengið þetta borgað... þetta væri sko launalaust leyfi.... og mér er alveg sama.... ég fæ að fara heim :lol: Ég er að vinna 21 des til kl 15 svo að við tökum kvöld flugið og lendum í keflavík um miðnætti og förum svo heim snemma um morguninn 2 des :)
 
Svo er það dönskuskólinn: ég fór í viðtal í síðustu viku þar sem ég var látin lesa og skrifa á dönsku... svo að sjá hvar ég stæði :) Og ég byrja svo á mánudaginn í skólanum, verð á mánudögum og miðvikudögum í 2 klst í senn :) Þetta námskeið er svo alveg í 6 mánuði og það er mætingaskylda eins og í framhaldsskóla hehe :lol:
Ernir er orðin svo klár í dönskunni að við förum ekki í sama bekkinn... en hann á eftir að fá bréf frá sínum skóla.

Á síðustu helgi var Ernir með póker kvöld hér með strákunum og ég fór og hafði stelpukvöld með Ingu og Önnu. Við elduðum góðan mat saman, horfðum á stelpumyndir og borðuðum ísl nammi í boði Ingu... Takk kærlega fyrir mig... det var meget got :d

Annars er mikið að gera hjá Erni mínum þessa dagana... það er verið að læra til 17-18 á kvöldin til að skila inn verkefnum fyrir haustfríið sem er eftir viku. En honum finnst þetta svo gaman að tíminn bara flýgur í skólanum :d En svona erum við bæði mjög busy þessa dagana og mjög þreytt á kvöldin :) Svo um helgina á bara að hafa það kósý og chilla :) 

Ég er búin að hafa skypefundi með fjölskyldunni og Evu minni í vikunni og vá hvað það var gott að heyra í þeim öllum :) sakna þeirra massa mikið :) Takk fyrir spjallið :)

Núna er bara 4 vikur í að tengdó komi í heimsókn... fyrstu gestirnir okkar... og okkur hlakkar mikið til.. mikið búin að spá í hvað við gætum gert til að nýta tíman sem best :)

Jæja þá held ég að þetta sé nóg í bili.. ætli ég bloggi ekki eftir viku þegar ég er komin með meiri reynslu af vinnunni :)
En þangað til næst hafði það sem allra best og endilega skiljið eftir kommet... það gleður mitt hjarta svo massa mikið :d 

Venlig hilsen
Anna Huld

» 12 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 15:02:56 / annahuld

Komin með vinnu

Já þetta eru svo sannalega fréttir... ég er loksins komin með vinnu :) Þetta er á HC Andersen barnaspítalanum, deild sem tekur á móti börnum á aldrinum 0-14 ára. Fór í viðtalið í morgun... þar sem 4 hjúkrunarfræðingar tóku á móti mér og voru með í viðtalinu... mér leist nú ekkert á þetta fyrst en svo voru þær allar svo rosalega fínar að þetta gekk bara rosalega vel. Deildarstjórinn spurði svo hvenær ég vildi byrja og ég sagði strax "á morgun" og þær hlóu bara af mér. Þá komst það upp að ein hjúkkan átti bróðir sem býr í Rvk með ísl konu og henni finnst hún vinna rosalega mikið hehe. Já ég fæ að vinna 100% vinnu sem er 37 klst í viku og finnst þeim það alveg rosalega mikið:lol:
Já mér er svo sannalega létt... á morgun ætla ég í HM og kaupa mér bol sem ég er búin að vera horfa á :) svona til að fagna:lol: Þeim fannst alveg rosalega flott að ég kynni á CPAP en það er græja sem við notum mikið á vökudeildinni :) Þetta er mjög krúttleg deild, mikið af myndum upp um alla veggi sem börnin hafa teiknað fyrir starfsfólkið:)
Á fimmtudaginn fer ég svo að hitta deildastjóran, fæ vaktaskýrslu og sýningu á deildinni og ýtarlegri lýsingu:d
Svo á miðvikudaginn 1.okt fer ég loks að vinna:)

Næstu skemmtilegu fréttirnar sem ég er með er að Eva og Pálína eru að koma í heimsókn til mín 29 nóv og verða til 3 des... sem sagt verða hér þegar ég á afmæli... ohh já lífið er yndislegt. Þær koma á laugardegi... þá á að reyna ná HM svo að sjálfsögðu djamm. Á sunnudeginnum er dýragarðurinn ofl... á mánudeginum er verslað (svona ef dk krónan er undir 18...eru við að ræða það eitthvað!!úff) og svo ræð ég hvað er gert um kvöldið því ég á afmæli... svo á þriðjudeginum Köben í jólatívolí og svo fara skvísurnar heim á miðvikudegi. Nú þarf ég bara að ath hvort ég verði ekki í fríi:lol:

Svo eru nú bara 3 vikur í að Valla uppáhalds systir mín flytji til mín :) Já það blómstrar allt núna, hlutirnir eru að gerast:d

Annars það sem við höfum verið að bralla síðustu daga... Við héldum matarboð hér á föstudagskvöldið, buðum Önnu og Ingu nýju vinkonum mínum :) (var ég ekki annars búin að fá velyrði fyrir 2 vinkonum?:)) Og hér var borðað, drukkið og haft gaman. Fórum svo upp á stúdentagarða í svaka íslendinga partý þar sem var gítar og alle græer:lol: Þetta var nú meira grínið :lol: Já endalaust eitthvað að gerast. Svo á næstu helgi þarf ég að fá inni hjá Ingu og hafa flakkarakvöld þar sem Ernir er búin að bjóða nokkrum vinum sínum heim i póker:) Já við erum öll að reyna aðlagst hér í Danaveldinu
.
Annars spáir hér sól og 18 gráðu hita framm yfir helgi... :) Þannig að ég ætla að reyna vörka tanið áður en veturinn skellur á hehe:lol:
Á morgun er það svo grænmetismarkaðurinn, HM, skrifa bréf til Ömmu og afa... já það er nóg að gera hehe :)
Jæja hef ekki fleiri fréttir í bili
Kveðja Anna sem er ekki lengur atvinnulaus:d

» 16 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 15:48:15 / annahuld

Og vikurnar orðnar 2 :-)

Hi eins og maður segir á dönsku :)
Hér er svo sem nóg að gera. Í síðustu viku og helgi kláruðum við að koma okkur almennilega fyrir, nú á allt dót sinn stað og ég þ.a.l mjög glöð:d

Ernir fékk svo gefins miða á hokkíleik í skólanum... fékk sko einn miða fyrir kæró líka :)
Þetta voru okkar menn Odense Bulldogs á móti Sönderjyske... og að sjálfsögðu unnu okkar menn 3-1.. mitt lið tapar sko ekki :lol:

Við höfum svo verið að taka því nokkuð rólega þessa vikuna. Ernir er í skólanum til svona kl 15, á meðna þá er ég heima að þrífa... (allt orðið sterilt núna :lol:) svo fer í göngutúr eða hjólatúr. Þegar svo Ernir kemur heim þá kíkjum við yfirleitt eitthvað aðeins í göngutúr og svo aftur eftir matinn. Það er svo ljúft veðrið að það er eiginlega ekki hægt annað.

Annars hef ég verið að leita af íbúð fyrir Völlu systir líka og það er sko keppnis að fá íbúð hehe... Þetta gengur þannig fyrir sig að maður fær að skoða íbúð og ef manni líst á hana þá verður maður að vera fyrstur að hringja inn kl 10 morguninn eftir til að fá hana... já ekki verið mikið að spá í hvernig manneskja fær hana...mjög spes.. En góðar fréttir ég fann eina rosalega sæta íbúð í dag og er sko búin að negla hana. Þannig Valla flytur til DK í okt :d

Við hjónakornin erum búin að skrá okkur í dönskunám og erum núna bara að bíða eftir bréfi frá skólanum um hvernær við meigum byrja... ég get ekki beðið :d
Svo erum við aldeilis líka orðin meðlimir í Danske bank... fengum sko kort sem við getum notað í hraðbanka... en þegar ég hef fengið laun inn á reikninginn í 3 mánuði þá meigum við fá debitkort til að nota í búðum... já hér slást bankarnir aldeilis ekki um viðskiptavini hehe:)

Annars bestu fréttirnar eru þær að ég fæ loksins að fara í atvinnuviðtal á morgun...allir að hugsa vel til mín... ég er virkilega að vonast eftir að geta farið að byrja að vinna sem allra fyrst :) Þetta er á krabbameinsskurðdeild... þannig ég ætla að prófa að vinna með fullorðna aftur... langar samt mest á barnadeild (meira að segja búin að vera dreyma vökdeildina) en þetta er fyrsta deildin sem svarar og þá prófar maður það bara :) En vá hvað ég sakna þess að vera vinna... ég greinilega elska vinnuna mína :)

Svo er alltaf að bætast í listann af vinum og vandamönnum sem ætla að koma að heimsækja okkur. Tengdó kemur mánaðarmót okt/nóv. Soffía og Ólöf Lilja eru að koma með vinnunni til Köben e-h tíman í nóv og ætla að kíkja svo á okkur og svo var Eva mín að tala um að koma jafnvel líka og versla inn fyrir jólin :d Já ég mun sko taka rosalega vel á móti ykkur öllum, við verðum búin að finna út það skemmtilegasta við Odense og sýna ykkur það allt :d

En nóg blaður í bili... nú er best að fara laga mat :)
over and out Anna Huld 8)

» 10 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 17:28:15 / annahuld

Búin að vera í eina viku í dag :-)

Já í dag er akkúrat vika síðan ég flutti hingað... og líst mér bara ágætlega á þetta allt saman.
Á föstudaginn var menningarnótt hér í Odense. Við kíktum að sjálfsögðu, þar voru dansara að dansa á torginu, leikarar með leikþátt í göngugötunni og nokkrar hljómsveitir hér og þar úti að spila. Calsberg lét sig ekki vanta og var með vagna hér og þar um göngugötuna þar sem hægt var að fá sér einn svellkaldan úr krana 8) Veðrið var rosalega gott um 18 gráður og alveg þurrt :) Fólk var þarna á öllum aldri, enda allt búið kl 22 og við kominn upp í rúm kl 23 :lol:
Á laugardeginum var vaknað snemma, fengum okkur góðan morgunverð og svo út að labba (gerum annsi mikið af því þessa dagana hehe). Við röltum niðrí bæ og fundum grænmetismarkaðinn sem er hér tvisvar sinnum í viku. Þarna koma bændurnir með sýnar afurðir s.s grænmeti, ávexti, kartöflur, ost, nýbakað brauð ofl, ofl :) þetta er alveg æði og fékk ég mikinn valkvíða :lol: Ernir þurfti að minna mig nokkrum sinnum á að við ættum bókað eftir að fara þangað aftur hehe.
Um kvöldið var svo komið að því að hitta ísl stelpurnar hér í bæ. Við vorum held ég 10 sem hittumst á kaffihúsi. Að sjálfsögðu fékk maður sér öl... og að sjálfsögðu endaði þetta í svaka gríni sem endaði um kl 05:30 hehe já hérna er sko vel hægt að djamma. Annsi hressar skvísurnar hérna. Við fórum á heitasta staðinn (sem ég man ekki alveg nafnið á) en þetta var rosalega flottur staður. Ég skildi ekkert í því að það var ENGINN VIP röð... hvað er það???? Við biðum örugglega í 30 mín í röð... ég treysti því Soffía mín að þú kíkir á þetta þegar þú kemur hehe :lol:
Á sunnudeginum var ég vakinn um með flottum morgunverði af Edda mínum. Svo var kíkt út að ganga í bongoblíðu... 28 gráðu hita og sól :) já hér er ekki komið haust:) Við fórum í svona hálfgerð kolaport að skoða... og svo löbbuðum við bara út um allt... maður tímdi ekki að fara inn það var svo gott veður. Svo var bara kósý kvöld eftir það :)
Á morgun er svo stór dagur þar sem við fáum allt dótið okkar sent heim: sófa, sjónvarpsborð, kómmóður og fataskáp :d Ernir er líka búin að setja upp hengi í forstofunni og skóhillu:)  Svo fer að koma að því að ég taki myndir af íbúðinni og setji hér inn ( á reyndar eftir að læra það hehe)
En þar til næst hafið það rosa gott
Over and out Anna Huld

» 10 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 17:27:07 / annahuld

Er öll að aðlagast DK :)

Jæja þá er kominn tími á smá update :-)
Við Ernir erum svona að vinna í því að koma okkur fyrir. Dagurinn gengur þannig fyrir sig að Ernir fer í skólann um kl 7:30 og ég sef aðeins lengur... til svona 9 hehe. En þá hef ég farið í útréttingar eins og fá mér kennitölu, sækja um húsaleigubætur, læra að rata og svo síðast en ekki síst leita mér að vinnu. Svo kemur Ernir heim um kl 14 og þá er farið í húsgagnaverslanir og reynt að finna eitthvað lítið og nett í litlu íbúðina okkar. Í gær var svo stór dagur þegar við fundum sófa, 2 kommóður, fataskáp og sjónvarpsskáp :) en þetta kemur allt í hús á þriðjudaginn... já og þeim fannst það meira að segja mjög góð þjónusta :lol: hér er sko ekkert samdægur.... ég er ekki viss um að það sé til danskt orð yfir það :lol:
Svo að vinnumálum..! Ég er búin að fara í job center og þeir vísuðu mér á að fara á spítalann... ég fór þangað og þeir vísuðu mér aftur heim á netið og sækja um þar... úff ég var rúma klukkustund að semja umsókn sem var kannski 7 línur... hehe og þurfti að flétta annsi mörgum orðum upp í orðabókinni (sem er mín besta vinkona þessa dagana :)) Svo er það bara að bíða og sjá hvort einhver svari mér ekki í næstu viku;)
Ég og Ernir fórum svo í mjög rómatískan hjólatúr í dag, fram hjá dýragarðinum (sem er btw held ég geggjaður)... þetta er náttúrulega bara geggjað. Um 20 gráðu hiti og sól :d
Á morgun er svo búið að bjóða mér á stelpudjamm :lol: Anna frænka hennar Herdísar hefur tekið mig að sér og bauð mér með að hitta fleiri ísl stelpur... hlakka mikið til :d
Annars finnst mér þetta nóg í bili
Læt heyra í mér aftur... gaman að sjá hversu margir kvitta fyrir komuna, ég þarf að læra setja inn talningu hehe
Over and out Anna Huld

» 11 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 12:31:12 / annahuld

Fyrsta blogið :-)

Sælir
Jæja ég var búin að lofa að byrja að blogga þegar ég myndi flytja út og ég ælta að reyna vera vodalega dugleg :lol:
Nokkur orð um vinkonur mína á Íslandi áður en ég fer að tala um Odense 8)
Eitt orð: ég á BESTU vinkonur í öllum heiminum. Þær voru búnar að plana rosalega flott suprise partý fyrir mig og Anna fattlausa fattaði ekki neitt 8| Ég var búin að reyna viðra þessa hugmynd um að fara aðeins út á lífið saman áður en ég myndi flytja út. En stelpurnar voru merkilega uppteknar... á vakt... búnar að djamma of mikið osfrv og ég keypti þetta allt saman. Eva mín sótti mig og Völlu systir og var ferðinni heitið til Soffíu þar sem ég hélt að Pálina og Soffía væru. En þegar ég kom var tekið á móti mér með kokteilum, mjög vel skreyttri íbúð... allt í DK fánum og búið að skrifa á vegginn "Góða ferð Anna Huld" Þetta var æði... og þarna voru allar mínar "uppteknu" vinkonur í mikilli gleði. Þá hafði verið að ganga leynilegur póstur um þetta í ca 4 vikur hehe :) Þetta endaði að sjálfsögðu í mikilli gleði sem stóð yfir fram á morgun. ;) Takk kærlega elskurnar mínar. Ég set inn myndir frá þessu um leið og ég læri það hehe :d


En að Odense nú er þetta dagur nr 3 hér í Odense. Fyrsti dagurinn var nokkuð strembinn... gat ekkert sofið áður en ég fór af stað en svaf aðeins í flugvélinni. Imma hjúkka veitti mér góðan félgasskap á leiðinni. 8) Svo var það að taka lestina til Odense með tvær stórar töskur, bakpoka og eitt stykki hjól 8|. Ég keypti mér lestarmiða en missti svo af lestinni því ég var svo lengi að hreyfa mig með allt þetta dót og var alls ekki sátt :^) En svo var einhver indæll strákur sem hjálpaði mér með dótið inn í lestina :) En þar sem ég missti af fyrri lestinni þurfti ég að koma við í Kaupmannahöfn og skipta þar um lest... þar var annar kurteis drengur sem hjálpaði mér í næstu lest með allt mitt havetask... svo tók Ernir á móti mér á lestarstöðinni í Odense og mikið var ég nú glöð að sjá hann :d

Dagur nr 2 :) Ég svaf í ca 14 klst... rosalega þreytt eftir ferðalagið. Við fengum dótið okkar sent heim og Kalli vinur hans Ernis hjálpaði okkur að bera það inn:)
Eftir það var tekið upp úr einhverjum kössum og svo farið út að skoða húsgögn... að sjálfsögðu á hjólunum :) Fórum í heimsins minsta IKEA svo var kíkt í Bilka ofl.
Eftir það hjóluðum við heim í grenjandi rigningu (en 20 gráðu hita). Farið í náttfötin og snemma að sofa.

Í dag er ég búin að sækja um kennitölu, fara í pósthúsið og skoða mig um í miðbænum. Ern núna að bíða eftir að Eddi minn komi heim svo að við getum farið að kaupa okkur fataskáp ofl.

Jæja þetta er orðið eins og Evu blog hehe
Bestu kveðjur Anna Huld


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 11650
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 955 dögum
Í settan dag hjá bumbulíusi :-)
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Klukkan
Hver er Anna Huld
Nafn: Anna Huld Jóhannsdóttir Fædd árið sem gáfaða fólkið er fætt... 1980 :) Afmælið mitt er 1.des..(en þessvegna er flaggað þann dag svona ef þið vissuð það ekki hehe). Ég er menntuð sem eðalhjúkka og útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri. Ég er nýflutt til Odense í DK með mínum heittelskaða Erni og er það tilefnið til þess að ég byrjaði að blogga :-)